Tíðni
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Tíðni er mæling á hversu oft tiltekinn atburður verður á ákveðinni tímaeiningu. SI-mælieining tíðni er hertz, sem einnig nefnist rið á íslensku. Táknið fyrir tíðni er f og á það rætur sínar að rekja í enska heitið á tíðni, frequency. Tíðni er formlega skilgreind sem
þar sem T er sveiflutími.
Horntíðni, táknuð með ω á við hringhreyfingu og telur hve mörkum hringjum (2π) er lokið á hverri tímaeiningu, þ.e.
ω := 2πf = 2π/T.
[breyta] Bylgjur og tíðni
Bylgjur hafa tíðni og þá er talað um fjölda bylgjuumferða á tímaeiningu (sekúndu ef mæla á bylgjuna í Hz, sem er yfirleitt gert). Hægt er að reikna tíðni bylgju með eftirfarandi jöfnu
þar sem v táknar hraða bylgjunnar og λ táknar bylgjulengd bylgjunnar.
[breyta] Dæmi um bylgjur og tíðni
- Sem dæmi má nefna hljóð, en hljóð hefur ákveðna tíðni sem segir til um tónhæð hljóðsins. Tíðni hljóðsins ákvarðast af því hversu oft hljóðbylgjurnar sveiflast á sekúndu. Mannseyrað (á heilbrigðum ungum einstakling) getur numið hljóð frá 20 Hz (20 sveiflur á sekúndu, mjög djúpt hljóð) að 20.000 Hz (20.000 sveiflur á sekúndu, mjög bjart hljóð).
- Annað dæmi er tíðni rafmagns í raforkukerfum. Í Evrópu er þessi tíðni 50 Hz en í Bandaríkjunum er þessi tíðni 60 Hz. Þetta þýðir að spennan í kerfinu í Evrópu sveiflast frá lággildi sínu(u.þ.b. -325 Volt) til hágildis síns (325 Volt) 50 sinnum á sekúndu. Þetta þýðir m.a. að allar ljósaperur blikka 50 sinnum á sekúndu, en sem betur fer blikka þau of hratt fyrir augu okkar til að nema (augun í mannslíkamanum geta numið u.þ.b. 20Hz).
[breyta] Tengt efni
- Doppler hrif
- Tónhæð
- Hljóð
- Ljós
- Rafmagn