Flakkari (förumaður)
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Flakkari (eða förumaður) er maður sem ferðast milli staða, hvort sem er til ferðalaga, eða vegna þess að viðkomandi á hvergi heima og er á vergangi. Flakkarar settu töluverðan svip á íslenskt þjóðlíf, allt frá landnámi að upphafi 20. aldar. Íslenskir flakkarar (oft sveitaómagar) voru oft kvæðamenn eða góðir upplesarar á kvöldvökum eða unnu fyrir sér með ýmsum hætti, allt eftir því hvað þeir þurftu að gera til að fá gistingu og fæði. Flakkarar voru stundum nefndir landshornaflakkarar eða landshornasirklar, reikunarmenn, slangarar eða slattarar. Einnig tíðkuðust heitin umferðarkarl og brautingi.
[breyta] Tenglar
- Dúllað og tónað, dansað og leikið - förumenn og leiklist í lok 19. aldar; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1997
- Kúa-Grímur og kirkjuklukkurnar í Skálholti; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1971
- Einar durgur; greinarbrot í Lesbók Morgunblaðsins 1952