Eldbjargarmessa
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Eldbjargarmessa er 7. janúar, en þá skyldi slökkva jólaeldinn og jólaboðsgestir ríða frá garði. Sá dagur var einnig á 13. og 14. öld kallaður affaradagur jóla, og enn eldra heiti er eldsdagur jóla. 7. janúar gengur einnig undir heitinu Knútsdagur.