Eiginmaður
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Eiginmaður (eða eiginbóndi) er karlkyns aðilinn í hjónabandi. Gagnkynhneigður karlmaður sem kvænist konu verður eiginmaður við giftingu, og er rétt fyrir og eftir athöfnina nefndur brúðgumi og konan brúður. Í skáldamáli var eiginmaður stundum nefndur faðmbyggir eða spúsi, en hið síðarnefnda er stundum notað sem gæluyrði yfir eiginmann. Eiginmaður sem konu hefur verið þröngvað til að eiga nefnist nauðmaður.