Bugspjót
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Bugspjót er (tré)stöng fram úr stafni (segl)skips sem fremsti hluti reiðans (m.a. klýfir) er festur á. Bugspjót nefnist einnig útleggjari eða spruð. Brandauki er viðauki bugspjóts. Vaturstagur nefnist stag neðan á bugspjóti. Undir bugspjóti seglbáts var á fyrri öldum oft komið fyrir stafnlíkani.