Askar Capital
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Askar Capital er fjárfestingabanki sem leggur áherslu á sérhæfðar fjárfestingar (alternative investments) á nýmörkuðum. Bankinn veitir fagfjárfestum fjármálaþjónustu á sviði eignastýringar, fasteignafjárfestingarráðgjafar og áhættu- og fjármögnunarráðgjafar.
Hjá Askar Capital starfa 80 manns um allan heim með víðtæka starfsreynslu og menntun. Höfuðstöðvar bankans eru í Reykjavík en aðrar skrifstofur bankans og dótturfélaga hans eru á Indlandi, Lúxemborg, Rúmeníu og Bandaríkjunum. Forstjóri bankans er dr. Tryggvi Þór Herbertsson prófessor áður forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands.
Meðal kjölfjárfesta í bankanum er fyrirtækið Milestone í eigu Karls Wernerssonar og Steingríms Wernerssonar.
Í stjórn Askar Capital eru:
- Haukur Harðarson, formaður
- Guðmundur Arason
- Guðmundur Ólason
- Jóhannes Sigurðsson
- Linda Bentsdóttir
- Steingrímur Wernersson
Auk forstjóra eru lykilstjórnendur; Benedikt Árnason, aðstoðarforstjóri, Bogi Nils Bogason, fjármálastjóri, Magnús Gunnarsson, framkvæmdastjóri Avant, dr. Sverrir Sverrisson, framkvæmdastjóri Eignastýringar, Þórður Jónasson, framkvæmdastjóri Áhættu og Fjármögnunarráðgjafar, Tómas Sigurðsson, framkvæmdastjóri Fasteignafjárfestingarráðgjafar og Yngvi Harðarson, framkvæmdastjóri Áhættustýringar.
[breyta] Tenglar
- Heimasíða Askar Capital
- Askar Capital tekur til starfa um áramót, 15. desember 2006
- Milestone er kjölfestufjárfestir í nýjum fjárfestingarbanka, 15.12.2006
- Nýr fjárfestingarbanki tekur til starfa um áramót, 24.11.2006
- Nýr fjárfestingarbanki stofnaður, 15.12.2006
- Forstjóri Lánasýslu ríkisins lætur af störfum, 02.04.07
- Askar Capital opnar skrifstofu í Búkarest, 20.09.07