Andspyrna (hreyfing)
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Andspyrna er lauslegur hópur anarkista á Íslandi. Upphafsmaðurinn er Sigurður Harðarson, hjúkrunarfræðingur og pönk-söngvari, sem stofnaði vefsíðu Andspyrnu og bókasafn hennar. Engin spjaldskrá er til yfir meðlimi hópsins, en starfsemin felst í því að reka bókasafnið (sem er til húsa í Friðarhúsi en var áður í Tónlistarþróunarmiðstöðinni), selja bækur í distrói (bókamiðlun) Andspyrnu, þýða og gefa út bækur og bæklinga, sýna kvikmyndir og fleira.