Almannatengsl
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Almannatengsl eru gríðarlega víðtækt hugtak og fellur ýmiss konar markaðsstarfsemi undir það. Til dæmis má nefna auglýsingar, skrif fréttatilkynninga og uppákomur sem eru skipulagðar með það í huga að fanga athygli fjölmiðla og neytenda og tryggja þannig að ímynd og ásjóna þess er nýtir sér almannatengslin sé viðkomandi í hag. Eitt helsta markmið almannatengsla er að tryggja fyrirtækjum umfjöllun í fjölmiðlum án þess að greiða fjölmiðlinum sérstaklega fyrir það. Það væri þó mikil einföldun að segja að almannatengsl snerust eingöngu um að fá ókeypis umfjöllun.
Sem dæmi um íslensk almannatengslafyrirtæki má nefna AP almannatengsl [1], Athygli, Bæjarútgerðina, GCI, Íslensk almannatengsl [2], og KOM.
Almannatengslafélag Íslands [3] er samstarfsvettvangur þeirra sem starfa við almannatengsl á Íslandi.