Lokalausnin
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Lokalausnin við gyðingavandamálinu (á þýsku: Endlösung der Judenfrage) vísar til áætlunar nasista um að útrýma gyðingum í Evrópu meðan á seinni heimsstyrjöldinni stóð. Hugtakið var smíðað af Adolf Eichmann, háttsettum nasista sem sá um framkvæmd þjóðarmorðsins. Eftir seinni heimsstyrjöldina var hann handtekinn, dreginn fyrir dóm og tekinn af lífi í Ísrael árið 1962.