Listamannaskálinn
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Listamannaskálinn var sýningarskáli reistur af Félagi íslenskra myndlistarmanna árið 1943 fyrir söfnunar- og gjafafé á lóð sem íslenska ríkið úthlutaði félaginu við hliðina á Alþingishúsinu milli Vonarstrætis og Kirkjustrætis við Austurvöll í Reykjavík. Skálinn var fyrsta sýningarhúsnæðið á Íslandi sem var sérstaklega reist fyrir myndlistarsýningar. Fyrsta sýningin sem þar var haldin var yfirlitssýning félagsins í apríl 1943. Hann var rifinn árið 1968, sama ár og framkvæmdir hófust við Kjarvalsstaði, og þótti þá mjög úr sér genginn. Á lóðinni stendur nú Skálinn, viðbygging við Alþingishúsið sem var reist árið 2002.