Tómhyggja
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Tómhyggja eða níhílismi (áður nefnd alneitunarstefna) er stefna í heimspeki, sem staðhæfir að alheimurinn, einkum þó tilvist mannskepnunnar, sé án einhvers raunverulegs gildis, markmiðs, sannleika eða ómissandi tilgangs.
Tómhyggjumenn (níhilistar) trúa ýmist öllum eða einhverju af eftirfarandi hugmyndum: það er engin rökbundin sönnun fyrir tilvist „æðri drottnara“ eða skapara, „sannur“ siðaboðskapur er með öllu óþekktur og einhver sönn siðferðisgildi sem ná eiga yfir alla veröldina eru ómöguleg; lífið hefur engann ósvikinn æðri „sannleika“ að geyma og engar gjörðir manna né dýra séu í raun „ákjósanlegri“ eða „betri“ en einhverjar aðrar.
Orðið níhilismi kemur frá nihil úr latínu, sem þýðir einfaldlega ekkert.