Nýja testamenti Odds Gottskálkssonar
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Nýja testamenti Odds Gottskálkssonar er elsta bók sem prentuð var á íslensku. Bókin var prentuð í Hróarskeldu í Danmörku. Prentun lauk 12. apríl 1540. Bókin var um 330 blöð og í litlu broti eða 8vo (sjá -vo). Ekki er vitað hve mörg eintök voru prentuð en talið er líklegt að Oddur hafi ætlað sérhverjum presti á Íslandi eintak.