Hinrik af Lúxemborg
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hinrik stórhertogi (f. 16. apríl 1955) er þjóðhöfðingi Lúxemborgar og tók við þeirri stjórn af föður sínum Jóhanni stórhertoga árið 2000. Móðir Hinriks er Jósefína Karlotta, prinsessa frá Belgíu. Hann á fjögur systkini.
[breyta] Fjölskylda
Hinrik giftist þann 14. febrúar 1981 kúbverskri konu að nafni Maria Teresa Mestre y Batista. Þau eiga fimm börn:
- Vilhjálmur, erfðahertoginn af Lúxemborg (f. 1981)
- Felix prins af Lúxemborg (f. 1984)
- Loðvík prins af Lúxemborg (f. 1986)
- Alexandra prinsessa af Lúxemborg (f. 1991)
- Sebastían prins af Lúxemborg (f. 1992)
|