Fruma
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Frumur eru smæstu, lifandi byggingareiningar lífvera, þ.e.a.s. allar lífverur eru gerðar úr frumum. Til eru lífverur sem eru einungis ein fruma og nefnast þær einfrumungar en að öðrum kosti fjölfrumungar. Frumum er almennt skipt í dýrafrumur og plöntufrumur. Þær geta verið sérhæfðar, t.d. taugafrumur og veffrumur. Stærsta fruma mannsins er okfruma.
[breyta] Samsetning
Um 70% frumna er vatn. Um 1% eru ólífrænar jónir m.a. kalíum, natríum, magnesíum og kalsíum. Afgangurinn er ýmsar lífrænar sameindir m.a. lípíð, kolvetni, prótín og kjarnsýrur.
Frumulíffæri eru ýmsar sérhæfðar starfseiningar frumunnar sem sinna ólíkum hlutverkum og eru þau nokkur talsins (sjá mynd):
Í hverri frumu er einn eða fleiri kjarnar sem innihelda litninga. Frumur eru nefndar heilkjörnungar ef þær hafa skýrt afmarkaðan kjarna með kjarnahimnu en ella eru þeir nefndir dreifkjörnungar. Í kjörnum eru kjarnakorn sem mynda RNA við frumuskiptingu.
Umfrymi nefnist vökvi sem þekur rýmið milli frumulíffæranna. Umfrymið stjórnar umferð efna innan frumunnar á milli frumulíffæranna og í gegnum frumuhimnuna. Um umfrymið hríslast frymisnet sem getur annað hvort verið slétt eða kornótt eftir tegund frumunnar.
Ríbósóm (netkorn eða ríplur) er gerð úr RNA og prótínum. Hlutverk þeirra er að mynda prótín, annað hvort til neyslu innan frumunnar eða til útflutnings.
Golgikerfi (golgiflétta eða frymisflétta) eru klasar sekkja, seytibólna, efna sem fruman ætlar til útflutnings t.d. á mjölva, fitu eða úrgangsefnum. Golgikerfi geta einnig verið sekkir leysikorna sem sundra óntohæfum frumulíffærum.
Safabólur eru oftast nær litlar í dýrafrumum en stórar í plöntufrumum.
Hvatberar eru eins konar „orkuver“ frumunnar og innihalda sitt eigið erfðaefni. Í hvatberum fer fram bruni og öndun.
Grænukorn eru í plöntufrumum og eru nauðsynleg forsenda ljóstillífunar.
Deilikorn liggja rétt við kjarnann og taka þátt í frumuskiptingu.
Örpíplur og örþráðlingar eru hluti af stoðkerfi frumunnar. Þau mynda lögun hennar og taka þátt í myndum bifhára og svipna.
Í dýra- og plöntu-frumum er valgegndræp frumuhimna, þ.e.a.s. hún „velur“ hvaða efni ferðast í gegn. Frumuveggur er ysta verndarlag plöntufrumna gert úr beðma og pektíni. Eins og nafnið gefur til kynna er það eins konar styrktarlag frumunnar.
[breyta] Tengt efni
[breyta] Tenglar