Ermarsundseyjar
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ermarsundseyjar eru nokkrar eyjar í Ermarsundi úti fyrir strönd Normandí í Frakklandi. Þær skiptast í tvö umdæmi: Guernsey og Jersey. Bæði umdæmin eru breskar krúnunýlendur þótt hvorugt þeirra sé hluti af Bretlandi. Þau voru formlega hluti af hertogadæminu Normandí frá því á 10. öld. Við Parísarsáttmálann 1259, þegar Bretar létu Normandí af hendi við Frakka, voru þau áfram undir konungum Bretlands sem hluti af titlinum „hertoginn af Normandí“. Elísabet II er þannig hertogi yfir Ermarsundseyjum, fremur en drottning þeirra. Eyjarnar eiga ekki fulltrúa á breska þinginu, heldur hefur hvor þeirra eigið löggjafarþing. Eyjarnar eru hluti tollabandalags Evrópubandalagsins en teljast þó ekki í Evrópusambandinu.
[breyta] Eyjarnar
[breyta] Umdæmið Guernsey
- Guernsey
- Alderney
- Sark
- Herm
- Jethou
- Brecqhou
- Lihou
[breyta] Umdæmið Jersey
- Jersey
- Minquiers og Ecréhous (óbyggðir eyjaklasar)
Sunnan við Jersey er eyjan Chausey sem tilheyrir Frakklandi.